Forsíða Ling Ling Um Ling Ling
PDF Print E-mail

Vefritið Ling Ling

Vefritið Ling Ling var sett á stofn af tveim nemendum í Austur-Asíu fræðum við Háskóla Íslands með stuðningi Asíusetursins (ASÍS). Ætlunin er að birta hér efni frá fólki með sem víðastan bakgrunn sem allir hafa þó það sameiginlegt að hafa mikla þekkingu á málefnum Asíu. Þegar fram líða stundir verður vefritið Ling Ling að gagnasafni og geymslu sem öllum stendur opin til að fræðast og kynnast ólíkum menningarheimum og þjóðum.

 

Nafnið Ling Ling

Árið 1972 heimsótti Richard Nixon Kínaveldi og í kjölfarið færði Mao Zedong formaður kínverska kommúnista flokksins, Bandaríkjunum tvær risapöndur að gjöf. Risapöndurnar hétu Ling Ling og Hsing Hsing og urðu að einhverju helsta aðdráttarafli dýragarðsins í Washington. Þar með hafði ákveðin stefna verið endurvakin í utanríkismálum Kína sem hefur verið nefnd pöndu-pólitík (e. panda diplomacy). Pöndu-pólitík kínverja á alþjóðavettvangi er ævaforn hefð sem á rætur að rekja allt til Tang keisaraveldisins þegar keisarynjan Wu Zeitian sendi Japanska keisaranum tvær pöndur sem vináttuvott. Sama ár og risapandan Ling Ling lést í Washington var önnur panda sem einnig hét Ling Ling færð til Japans.

Árið 1992 skiptu Kínversk stjórnvöld risapöndunni Ling Ling fyrir aðra pöndu sem hafði fæðst í Japan. Skiptin áttu sýna á táknrænan hátt vinskap þjóðanna og velvilja í garðs hvors annars en Kína hafði gefið Japan nokkrar pöndur með reglulegu millibili síðan 1972. Ling Ling var komið fyrir í Ueno dýragarðinum í Tokyo og var lang stærsta aðdráttarafl garðsins til dauðadags árið 2008. Ling Ling var þjóðþekktur í Japan sem tákngervingur vináttusambands Japans og Kína.

Vefritið er nefnt eftir þessum risa pöndum sem hafa verið mikilvægir sendiherrar Kína og lagt grunninn að mjög svo sérstakri nálgun á alþjóðavettvangi. Nafnið Ling Ling er þekkt sem tákn um vilja þjóðanna til að leggja ágreininga sína til hliðar og læra að lifa í sátt og samlyndi. En stjórnmála sambönd flest allra þjóða í Austur-Asíu hafa átt erfitt uppdráttar eftir seinni heimstyrjöld.

 

 

 

Könnun

Hvað finnst þér gagnlegast á Ling Ling?
 

Fréttaflæði

Japani skortir ekki skrautlegheitin í kringum pólitíkina þessa dagana. Kona verðandi forsætisráðherra hefur lýst því yfir að hún hafa komið til Venusar, en þangað flaug víst sál hennar í þríhyrningslaga geimfari. Enn merkilegri er frambjóðandi "hamingjan verður að veruleika flokksins" (幸福実現党) því hann fær vitranir frá ekki minni mönnum en Konfúsíusi, Múhammed, Jesú og Mózart!

Grein um Miyuki Hatoyama, konu Yukio Hatoyama, verðandi forsætisráðherra Japans.
Grein um Furðuflokkinn "Hamingjan verður að veruleika"

Banner